Landskjörstjórn gerir athugasemdir við orðalag spurningarinnar sem bera á upp í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið í umsögn til utanríkismálanefndar Alþingis.Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra gerir ekki ráð fyrir því að verði orðalagi spurningarinnar breytt muni það hafa áhrif á tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem hefur verið boðuð 29. ágúst næstkomandi.„Ég held að það sé vel hægt að vinna þetta innan þess tíma sem við höfðum ætlað okkur,“ segir hún. Hvernig er spurningin orðuð í þingsályktunartillögu? „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“Svarmöguleikar: „Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu“ og „Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“Landskjörstjórn setur ú