Sendinefndir Írana og Bandaríkjanna komu í morgun til fundar við forsætisráðherra Pakistan í höfuðborg landsins til þess að ræða frið eftir um sex vikna stríð. Öruggt þykir að viðræðurnar verði snúnar. J.D. Vance varaforseti og erindrekinn Steve Witkoff komu fyrir hönd Bandaríkjanna til Islamabad í fylgd kaupsýslumannsins Jared Kushner, sem jafnframt er tengdasonur Trumps forseta. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, leiðir sendinefnd þaðan og því ljóst að viðræðurnar eru næstum á hæsta mögulega stigi. Óvíst er hvort leiðtogar sendinefndanna ræðist við augliti til auglitis eða aðeins í gegnum milligöngumenn Shebas Sharifs, forsætisráðherra Pakistans. Skrifstofa hans sagði í morgun að Pakistanar væru stoltir af því að leiða stríðandi fylkingar að samningaborðinu. Íranar segja að hvaða s