„Það er ólíklegt, sýnist mér og heyrist, að eldsneytisverð verði komið á svipaðar slóðir í lok ágúst, byrjun september og það var í upphafi árs,“ segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka.Hann segir ef til vill ekki sömu þörf á bráðaaðgerðum á Íslandi og í nágrannalöndunum vegna þess íslensk heimili séu betur varin fyrir hækkun eldsneytisverðs.Ríkisstjórnin kynnti í gær tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, aukna verðlagsvöktun og fjölgun hleðslustöðva í aðgerðapakka til að bregðast við verðbólgu. Aðgerðirnar taka gildi 1. maí og gilda út ágúst. Þetta eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar Lækkun á dælu:Með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts úr 24% í 11% á eldsneyti af dæluVöktun á verðlagningu:Með tímabundnu lagaákvæði sem skyldar söluaðila til að skila verðlækkun að f