Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í dag kröfu Lögreglunnar á Suðurnesjum um gæsluvarðhald yfir konu vegna gruns um alvarlegt umsáturseinelti.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum.Konan var handtekin í gær í tengslum við birtingu falskrar dánartilkynningar í Morgunblaðinu. Fjöldi fólks hefur kært konuna fyrir umsáturseinelti. Lögreglan hefur rannsakað þær ásakanir síðustu ár og stendur sú rannsókn enn yfir.Samkvæmt úrskurði héraðsdóms er konan laus úr haldi. Lögreglan hefur ekki enn ákveðið hvort úrskurðurinn verður kærður.Í gær birtist andlátstilkynning á minningarsíðum Morgunblaðsins þar sem tilkynnt var um andlát Sölva Guðmundssonar. Sú tilkynning reyndist uppspuni frá rótum, líkt og hann greindi frá á samfélagsmiðlum sínum.