Í dag eru sléttar fimm vikur þar til efnt verður til kosninga í sveitarfélögum landsins. Eru þau 62 talsins og af öllum stærðum og gerðum. Hið fjölmennasta er Reykjavík með tæplega 140 þúsund íbúa en fámennast er Tjörneshreppur þar sem íbúarnir eru 54 talsins.