Einu framboði var skilað inn í Vopnafjarðarhreppi áður en frestur til að skila inn listum fyrir sveitarstjórnarkosningar rann út á hádegi í gær. Fjallað er um málið á Austurfrétt.Framboðið ber nafnið Sterk stoð og er nýtt framboð. Það að framboðið sé eitt þýðir ekki að það verði sjálfkjörið heldur framlengist skilafresturinn um tvo sólarhringa. Árið 2022 buðu Framsóknarflokkurinn og óháðir fram í Vopnafjarðarhreppi ásamt Vopnafjarðarlistanum. Kjörstjórn kemur saman til að fara yfir framboð eftir hádegi á sunnudag. Vopnafjörður.RÚV / Rúnar Snær Reynisson