Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Verulega hvasst við Öræfin í kvöld

Víðáttumikil og djúp lægð nálgast landið úr suðaustri. Vaxandi norðaustanátt verður fram eftir degi. Í kvöld má búast við því að það verði hvasst og allt að því stormur við Öræfin undir Vatnajökli um tíma. Gefin hefur verið út viðvörun vegna þess. Hægari vindur verður norðaustanlands. Úrkomulítið verður um vestanvert landið fram eftir kvöldi og nóttu fyrir utan stöku él norðantil. Vind tekur að lægja á morgun sunnan- og austanlands. Áfram hvasst norðvestanlands fram á kvöld. Víða snjókoma, slydda eða rigning en dregur úr síðdegis. Úrkomuminna sunnan- og suðvestanlands. Hiti mun ná allt að 9 stigum næstu daga og verður mildast sunnantil. Höfnin á Skagaströnd. Mynd úr safni.RÚV / Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Verulega hvasst við Öræfin í kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta