„Hugmynd um sjálfsvarnarkennslu í grunnskólum er fjarri okkur og við mælum frekar með fræðslu, minni skjánotkun og meiri samskiptum. Það er ekkert að því að geta varið sig en það er ekki það sem við þurfum í þetta samfélag. Við þurfum pásu frá skjánum og þessum samfélagsmiðlum því þeir gefa ranga mynd af því góða og örugga samfélagi sem við búum í.“