Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkjaforseti reisir sigurboga

Donald Trump Bandaríkjaforseti afhjúpaði í gær áform um að reisa stærðarinnar sigurboga nærri helstu kennileitum Washington-borgar. Sigurboginn verður 76,2 metrar á hæð og verður stærsta mannvirki sinnar tegundar í heiminum. Sigurboginn mun gnæfa yfir Lincoln-minnisvarðann og verður sýnilegur frá Arlington-kirkjugarðinum í Virginíu þar sem margar stríðshetjur eru grafnar.Bandaríkjaforseti sagði frá sigurboganum á samfélagsmiðlinum Truth Social í gær. Hann sagði að mannvirkið yrði mikilfenglegasti og fallegasti sigurboginn í heiminum og frábær viðbót við kennileiti Washington D.C.Tölvugerðar myndir af boganum sýna vængjaða konu með tveimur gullhúðuðum örnum ofan á hvítum sigurboga. Sigurboginn bætist í hóp annarra mannvirkja og byggingaframkvæmda sem Bandaríkjaforseti hefur hafið eftir að h
Bandaríkjaforseti reisir sigurboga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta