„Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, vilja að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið og að ákvörðun um inngöngu verði borin undir þjóðaratkvæði.“ Svona hófst forsíðufrétt Fréttablaðsins 13. desember 2008. Þarna hafði Ísland nýlega gengið í gegnum bankahrun, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var enn við völd, löskuð þó, og þeir Bjarni og Illugi ungir og upprennandi í þingflokki þess fyrrnefnda....