Níu ára dreng var bjargað eftir að hafa verið læstur inni í sendiferðabíl í Frakklandi í rúmt ár. Drengurinn fannst nakinn og vannærður í bænum Hagenbach, í Alsace-héraði á mánudaginn.Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að nágrannar hafi gert lögreglunni viðvart eftir að þeir heyrðu grunsamleg hljóð koma frá bílnum. Drengurinn var mjög veikburða og gat ekki gengið sjálfur. Hann sagðist hafa verið læstur í bílnum frá lokum árs 2024. Hann sagði að faðir hans hefði fært honum mat tvisvar á dag og skilið eftir vatnsflöskur hjá honum.Engin salernisaðstaða var fyrir drenginn og hann hafði ekki farið í sturtu síðan hann var læstur inni í bílnum. Faðir drengsins var handtekinn og hann játaði að hafa læst son sinn inni í bílnum til að koma í veg fyrir að hann yrði lagður inn á geðdeild. Faðiri