Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ellefu flokkar skiluðu framboðslistum í Reykjavík

Ellefu flokkar skiluðu framboðslistum til yfirkjörstjórnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í næsta mánuði. Framboðsfrestur rann út í dag. Oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík segir að úrskuðað verði um gildi framboða á morgun. NOKKRIR FLOKKAR MEÐ FREST TIL MORGUNS Yfir sextíu sveitarfélög eru á landinu öllu og má því gera ráð fyrir að nóg verði að gera hjá kjörstjórnum við að fara yfir framboðslista og fylgigögn. Endanlegir listar verða kynntir eftir helgi.Hvernig hefur þetta gengið hjá ykkur það sem af er degi?„Bara mjög vel. Við erum búin að taka á móti ellefu framboðum og nú hefst vinna við að fara yfir öll framboðin og fylgigögnin og athuga hvort allt sé ekki eins og það á að vera. Og það verður úrskurðað um gildi framboða á morgun,“ segir Eva Bryndís Helgadóttir, oddviti
Ellefu flokkar skiluðu framboðslistum í Reykjavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta