Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðist til að beita „öllu efnahagslegu afli“ Bandaríkjanna til að hjálpa Ungverjalandi, styðji kjósendur bandamann hans, Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands, í kosningunum næstkomandi sunnudag.„Við erum spennt að fjárfesta í framtíðarvelmegun sem mun skapast undir áframhaldandi forystu Orbans,“ segir Trump á samfélagsmiðlum.Viktor Orban stendur frammi fyrir erfiðri baráttu en skoðanakannanir benda til þess að stjórnarflokkur hans tapi fyrir stjórnarandstöðuflokknum Tisza, eftir sextán ár í valdastóli. VANCE KOM Í HEIMSÓKN Peter Magyar, leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins, hefur sakað Bandaríkin um afskipti af kosningunum, en JD Vance varaforseti Bandaríkjanna heimsótti Ungverjaland í vikunni til að undirstrika stuðning við Orban. Vance hefur h