Verzlunarskóli Íslands sigraði Menntaskólann í Reykjavík í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Verzló sigraði með 35 stigum gegn 26 stigum MR eftir æsispennandi keppni.Staðan eftir hraðaspurningar var hnífjöfn og var spennan áþreifanleg í salnum. Úrslitin réðust svo þegar Verzlunarskólinn svaraði annarri vísbendingaspurningu kvöldsins í fyrstu vísbendingu og hlaut fimm stig fyrir.Verzlunarskólinn hefur nú bæst í hóp þeirra skóla sem hafa unnið keppnina næstoftast.Lið Menntaskólans í Reykjavík skipuðu þau Hulda Filippía Andradóttir, Dóróthea Margrét Jakobsdóttir og Davíð Friðriksson Magnus.