Eftir fantagóðan og jafnan fyrri hálfleik í leik þrjú hjá Stjörnunni og KR á átta liða úrslitum Bónus deildarinnar þá var eins og heimamönnum væri nóg boðið. Hitinn var skrúfaður í botn og KR grillað. Leikurinn endaði 104-80 og ásamt því að senda skilaboð þá leiða Stjörnumenn 2-1 í einvíginu.