Landskjörstjórn telur að orðalag sé gildishlaðið í frumvarpi utanríkisráðherra um þjóaratkvæðagreiðslu um hvort eigi að „halda áfram“ viðræðum um Evrópusambandið enda sé það umdeilt hvort umsókn Íslands sé virk eða ekki. Kjörstjórnin telur að spurningin geti vakið tortryggni um að framsetning hennar kunni að hafa áhrif á afstöðu kjósenda.