Artemis-leiðangurinn sem síðustu daga hefur flogið í kringum tunglið er væntanlegur til jarðar eftir nokkra klukkutíma. Leiðangurinn, sem er á vegum NASA, geimferðastofnunar Bandaríkjanna, hófst 1. apríl. Stefnt er að því að Orian, geimfari leiðangursins, verði lent stuttu eftir miðnætti í Kyrrahafi, úti fyrir San Diego.Heimferðin er flókin, jafnvel flóknari en förin að tunglinu, og hafa geimfararnir fjórir staðið í ströngu við undirbúning hennar.Björgunarsveitir verða tilbúnar í sjónum og hjálpa áhöfninni um borð í herskip. NASA hefur sett þau skilyrði að til að lenda þurfi ölduhæð að vera undir einum komma átta metrum og ekki megi vera rigning né hávaðarok og ekki eldingar innan þrjátíu sjómílna radíuss. Flest bendir til þess að aðstæður til lendingar verði góðar í kvöld.Við lendinguna m