Stjórn Sólheima í Grímsnesi hefur sagt upp þjónustusamningi við sveitarfélög á Suðurlandi þar sem ekki tókst að semja um aukin rekstrarframlög. Samningurinn tryggði búsetu- og atvinnuþjónustu fyrir fatlað fólk í landshlutanum en nú tekur gildi tólf mánaða uppsagnarfrestur. Samningaviðræður halda áfram og vonast báðir eftir því að finna góða lendingu í málinu.