Landskjörstjórn gerir athugasemdir við orðalag spurningarinnar sem bera á upp í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið í ágúst.Þetta kemur fram í umsögn hennar til utanríkismálanefndar frá því í dag.Spurningin, eins og hún er orðuð í þingsályktunartillögu, er eftirfarandi:„Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“Svarkostir eru:„Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu“ og „Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ SETJA ÚT Á FORSENDURNAR SEM SPURNINGIN GEFUR SÉR Landskjörstjórn telur að ekki sé hægt að slá því föstu að spurningin „geti ekki vakið tortryggni um að framsetning hennar kunni að hafa áhrif á afstöðu kjósenda“.Er þar vísað til þess að orðalag spurningarinnar feli í sér