Ráðherrar ríkisstjórnarinnar koma saman til fundar í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu klukkan 19.Gera þarf breytingar á frumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem var kynnt í morgun, um breytingar á virðisaukaskatti á eldsneyti.Á ríkisstjórnarfundi í morgun var ljóst að gera þyrfti tæknilegar breytingar á orðalagi frumvarpsins til að allir ráðherrar væru sammála. MIKILVÆGT AÐ HALDA TÍMAMÖRKUM Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarmaður Daða Márs Kristóferssonar fjármálaráðherra, segir að enginn ágreiningur sé uppi um efni frumvarpsins.Mikilvægt sé þó að klára smávægilegar orðalagsbreytingarnar í kvöld svo að frumvarpið komist á dagskrá Alþingis eftir helgi.Atvinnustefna Íslands og tímabundnar efnahagsaðgerðir gegn verðbólgu voru kynntar á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag.Efnahagsaðgerðirna