Gríðarlega miklu máli getur skipt að bregðast hratt við ef einhver lendir í snjóflóði. Fyrstu 15 mínúturnar eru mikilvægastar og að réttur búnaður geti bjargað mannslífum.„Fræðin segja allavega að fyrstu 15 mínúturnar hafi menn svona 90% lífslíkur en síðan er þetta bara nánast lóðbeint strik niður eftir þessar 15 mínútur,“ sagði Tómas Atli Einarsson, björgunarsveitarmaður á Ólafsfirði.Mikið hefur snjóað undanfarnar vikur, sérstaklega á norðan- og austanverðu landinu. Þá eru aðstæður til þess að fara á vélsleða eða fjallaskíði góðar. Þetta er skemmtilegt sport að sögn Tómasar, en ekki hættulaust.Hin heilaga þrenning fólks sem ætlar á fjöll eru: snjóflóðaýlir, skófla og stöng. Bæði til þess að tryggja eigið öryggi og til þess að vera klár að aðstoða aðra. Aðspurður telur Tómas að flestir séu