Ríkisstjórnin kynnti skammtímaaðgerðir sínar í efnahagsmálum í dag. Stjórnarandstaðan telur aðgerðirnar ekki duga til að minnka verðbólgu.Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir sín fyrstu viðbrögð að jákvætt sé að forsætisráðherra viðurkenni loksins vandann og að það hafi ekki tekist að lækka verðbólgu.„Og þess vegna hafi vextir hækkað á ný og planið er augljóslega ekki að virka. Ég held hins vegar að þetta muni ekki duga til að lækka verðbólguvæntingar, segir Lilja sem telur að mun umfangsmeiri aðgerðir þurfi til í samvinnu við vinnumarkaðinn. „Og alla sem koma að hagstjórn á landinu til þess að ná þessum verðbólguvæntingum og verðbólgu niður,“ segir Lilja sem telur að ríkisstjórnin þurfi að leggja mun harðar að sér til að ná árangri.Til stendur að virðisaukaskattur á elds