Verzlunarskóli Íslands og Menntaskólinn í Reykjavík mætast í úrslitaviðureign Gettu betur í kvöld. Úrslitakeppnin hefst klukkan 19:45 og von er á hörkuspennandi viðureign.Lið Verzlunarskólans skipa þau Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann.Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa þau Hulda Filippía Andradóttir, Dóróthea Margrét Jakobsdóttir og Davíð Friðriksson Magnus.Menntaskólinn í Reykjavík er sá skóli sem oftast hefur sigrað keppnina, alls 23 sinnum. Verzlunarskóli Íslands hefur þó aðeins sigrað keppnina tvisvar sinnum.Skólarnir mættust seinast í úrslitum keppninnar árið 2010, það ár bar MR sigur úr bítum.Síðastliðin tvö ár hefur Menntaskólinn við Hamrahlíð unnið keppnina. Menntaskólinn í Reykjavík vann keppnina seinast árið 2023 og Verzl