Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ekki sjálfkrafa refsivert að senda inn falska dánartilkynningu

Lögfræðingur segir ekki augljóst hvaða lög gætu hafa verið brotin þegar fölsk dánartilkynning var send inn og birt í Morgunblaðinu. Hún segir samhengi skipta mestu máli.Sölvi Guðmundarson var ranglega sagður látinn í dánartilkynningu í Morgunblaðinu í dag. Sölvi vakti sjálfur athygli á þessu á Facebook og nafngreindi þar konu sem hann telur standa að baki tilkynningunni. Sölvi hefur, ásamt minnst sex öðrum, kært konuna fyrir umsáturseinelti. Sölvi átti í árslöngu sambandi við konuna en því lauk fyrir rúmlega tveimur árum.Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti skömmu eftir hádegi að aðili hafi verið handtekinn vegna dánartilkynningarinnar. Sá hafi þegar verið grunaður um og sætt rannsókn vegna fjölda annarra tilvika umsáturseineltis.„Það er ekki sjálfkrafa refsivert að gera þetta, það að senda i
Ekki sjálfkrafa refsivert að senda inn falska dánartilkynningu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta