Fyrirhuguðu verkfalli hafnarverkamanna hefur verið frestað um sex vikur. Verkfallið átti að hefjast 13. apríl en því hefur verið frestað til 26. maí.Fram kemur í tilkynningu Eimskipafélagsins að félagið eigi í viðræðum við Sjómannafélag Íslands um gerð kjarasamninga. Félag hafnarverkamanna er undirdeild í Sjómannafélagi Íslands.„Það er samtal í gangi og við erum auðvitað vongóð um að ná farsælli niðurstöðu með því,“ segir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannauð og samskipta hjá Eimskip.Fyrr í vikunni boðaði Sjómannafélag Íslands til tveggja verkfalla, annars vegar hjá farmönnum og hins vegar hjá hafnarverkamönnum. Verkfalli farmanna var frestað í gær og hefur deilunni verið vísað til ríkissáttasemjara.