Sögur – verðlaunahátíð barnanna verður haldin í níunda sinn 30. maí. Hátíðin verður í beinni útsendingu á RÚV frá Borgarleikhúsinu. Á Sögum er menningarefni fyrir börn verðlaunað.Börnum í 1.–10. bekk í öllum grunnskólum landsins (6–16 ára) er boðið að kjósa það sem þeim finnst hafa skarað fram úr á sviði barnamenningar á síðasta ári. Fimm efstu úr hverjum flokki verða tilnefnd til verðlaunanna.Kosningin verður opin til 25. apríl og við hvetjum öll börn til að vera með! Tilnefningarhátíð verður í Borgarleikhúsinu 11. maí og þau sem eru tilnefnd til verðlaunanna fá viðurkenningu þar.Kjóstu með því að smella hér eða með því að fara inn á eftirfarandi vefslóð: https://www.surveymonkey.com/r/FTYFNMZ.