Kosið verður til sveitarstjórna í Árneshreppi og Kaldrananeshreppi sitt í hvoru lagi þrátt fyrir að sameining sveitarfélaganna hafi verið samþykkt fyrir stuttu. Einn listi hefur skilað inn framboði í Árneshreppi. NAUMT SAMÞYKKI FYRIR SAMEININGU Í ÁRNESHREPPI Íbúar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps samþykktu sameiningu sveitarfélaganna í íbúakosningum sem lauk 28. mars. Í Kaldrananeshreppi var sameiningin samþykkt með 73% atkvæða. Í Árneshreppi var hlutfall þeirra sem samþykktu sameininguna ívið lægra eða 56%.Fyrir kosningar hafði hópur fólks lýst sig tilbúinn að bjóða fram lista til sveitarstjórnarkosninga ef sameiningu yrði hafnað. Í Árneshreppi er löng hefð fyrir óhlutbundnum kosningum, betur þekktum sem persónukjöri. STAÐFESTING SAMEININGAR DREGST VEGNA KÆRU Undirbúningsstjórn same