Skammtímaaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í dag kosta þrjá og hálfan milljarð króna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist viss um að aðgerðirnar muni hjálpa til og muni hafa mælanleg áhrif. Þá vonist hún einnig til að þær hafi áhrif á verðbólguvæntingar.Hún gerir ráð fyrir því að aðgerðirnar þýði um 10% lækkun á verði á dælunni fyrir neytendur. Ríkisstjórnin sé meðvituð um að hætta sé á að hækkanir á eldsneyti hafi áhrif á allt samfélagið og leiði til frekari verðhækkana. „Við erum auðvitað í stöðugu aðhaldi,“ segir hún. „Við höfum verið að innleiða hagræðingaraðgerðir og við hvikum hvergi frá þeim.“Kristrún undirstrikar einnig að ekki sé um varanleg ófjármögnuð útgjöld að ræða heldur tímabundnar aðgerðir. „Þetta eru fjórir mánuðir þar sem við erum að kippa í bremsuna