Fulltrúar ellefu framboða hafa skilað inn listum fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Þar af eru þrjú ný framboð sem ekki buðu fram fyrir fjórum árum: Okkar borg, Vinstrið og Góðan daginn.Eva B. Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis, segir móttöku framboðslista í Ráðhúsi Reykjavíkur hafa gengið vel fyrir sig.„Við höfðum tvo fundi á miðvikudag og í dag til að taka við framboðum. Við tókum á móti ellefu framboðum og nú förum við bara yfir þau og athugum hvort það séu einhver atriði sem þarf að laga eða finna út úr.Svo munum við veita fresti ef það er eitthvað sem upp á vantar og úrskurða um gildi framboða á morgun,“ segir Eva. ELLEFTA FRAMBOÐIÐ BARST RÉTT FYRIR TÓLF Um klukkan hálf tólf í dag höfðu framboðslistar tíu flokka borist kjörstjórn. Stuttu áður en klukkan s