Tilnefningar til kvikmyndaverðlauna Eddunnar 2026 voru kynntar í dag. Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían hefur veitt verðlaunin árlega frá 1999.Árið 2024 voru kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin aðskilin og Edduverðlaunin hafa því undanfarin tvö ár aðeins veitt verðlaun fyrir kvikmyndir. Í byrjun þessa árs var tekin sú ákvörðun að Edduverðlaunin skulu einnig verðlauna fyrir leikið sjónvarpsefni en Sjónvarpsverðlaunin halda áfram að verðlauna fyrir annað sjónvarpsefni.Tilnefnt var í 35 flokkum fyrir kvikmynda- og sjónvarpsverk sem frumsýnd voru á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2025. Einnig verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt ásamt því að uppgötvun ársins hlýtur viðurkenningu, þau verðlaun fær einstaklingur sem ekki hefur áður hlotið tilnefningu í viðkomandi fagverðlaunaflokki en he