Ekki er mælt með því að barnafjölskyldur flytji aftur til Grindavíkur á meðan óvissa varir og móta þarf sambærilegt fyrirkomulag fyrir eldgos og jarðhræringar og gildir um ofanflóð.Þetta er meðal þess sem Grindavíkurnefnd mælist til að sé gert í rammaáætlun sinni um endurreisn Grindavíkur sem kynnt var í dag. Samhliða henni var ráðgjafaskýrsla Alþjóðabankans um endurreisn Grindavíkur einnig kynnt.Þar segir að stjórnvöld þurfi að undirbúa viðbragðsáætlanir fyrir fleiri möguleg gos- og hættusvæði á Reykjanesskaga, jafnvel samtímis. ÞARF AÐ STYRKJA RAFORKUINNVIÐI OG TRYGGJA VARAVATNSBÓL Tilgangur rammaáætlunarinnar um endurreisn bæjarins er meðal annars sá að meta stöðu samfélagsins og forsendur endurreisnar, skilgreina forgangsverkefni og skapa sameiginlega framtíðarsýn.Í rammaáætluninni