Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi danska stjórnmálaflokksins Moderaterne, ætlar ekki að halda áfram tilraunum til myndunar næstu ríkisstjórnar Danmerkur nema leiðtogum flokkanna Venstre og Konservative verði boðið að taka þátt.Eftir kosningar á dögunum fékk Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, stjórnarmyndunarumboð. Hún hefur átt í viðræðum við flokka á miðjunni og til vinstri, þar á meðal flokk Rasmussen, Moderaterne. Flokkur hans er í lykilstöðu eftir kosningarnar. Hann telur vænlegra að Frederiksen reyni að mynda stjórn til hægri með Venstre og Konservative og ætlar því ekki að reyna lengur að mynda stjórn með vinstriflokkunum.Leiðtogi Venstre, sem er hægriflokkur, Troels Lund Poulsen, sendi Rasmussen ákall í morgun um að Vestre og Moderaterne gætu sameinast um stefnu í efnahagsmálum