Lundinn, einn af vorboðum landsmanna, sást bæði í Grímsey og á Borgarfirði eystra í gær. Það voru systurnar Halla og Unnur Ingólfsdætur sem sáu til lunda í björgunum suður við vitann í Grímsey og Björn Aðalsteinsson sá til hans við Hafnarhólma á Borgarfirði eystra. Lundinn er oft á ferðinni á þessum árstíma, eða fyrstu vikurnar í apríl. Þetta er nokkuð hefðbundinn tími, segir Erpur Hansen, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands:„Hann hefur sést þarna alveg í lok mars ef ég man rétt. Hann er yfirleitt fyrr á ferðinni þarna í Grímsey og fyrir austan í Hafnarhólmanum. Þar eru til þokkalega langar upplýsingar í tímaröð miðað við hérna fyrir sunnan í Vestmannaeyjum. Við búumst við að fá hann hérna til Eyja í næstu viku,“ segir Erpur. ÓHRÆDDUR Í SNJÓ Snjó hefur tekið upp í hlýindum síðustu dag