Útivistarsvæðið Guðmundarlundur í Kópavogi minnir frekar á stöðuvatn en útivistarsvæði eftir storma og tilheyrandi leysingar. Framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Kópavogs segir vatnshæðina hafa náð tæplega metra þegar mest var. Allt horfi til betri vegar og skipulagðar fermingarveislur um helgina fari fram.