Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hættir sem bæjarstjóri á Skaganum og fer í framboð í Hvalfjarðarsveit

Haraldur Benediktsson hætti í dag sem bæjarstjóri á Akranesi og tilkynnti um leið að hann færi í framboð í Hvalfjarðarsveit. Tveir listar verða í framboði á kjördag.Haraldur hefur verið bóndi í Hvalfjarðarsveit og sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í tíu ár þar til hann var ráðinn bæjarstjóri 2023.Haraldur lét af störfum sem bæjarstjóri í hádeginu í dag. Hann sagði í samtali við fréttastofu að formlegur félagsskapur fólks stæði að framboðinu og hefði skilað inn framboðslista klukkan ellefu. Félagið nefnist Samhent sveit og fær listabókstafinn A.Áður hafði Íbúalistinn tilkynnt um framboð í Hvalfjarðarsveit. Því er ljóst að heimamenn kjósa milli tveggja framboða. Engir framboðslistar voru í kjöri síðast og því var persónukjör þar sem allir voru gjaldgengir.Skagamenn hafa lýst miklum áhuga
Hættir sem bæjarstjóri á Skaganum og fer í framboð í Hvalfjarðarsveit

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta