Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kona handtekin í tengslum við birtingu falskrar dánartilkynningar

Kona sem hefur verið sökuð um að fá birta falska andlátstilkynningu í Morgunblaðinu í dag var handtekin í morgun. Lögreglan ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir henni síðar í dag.Fjöldi fólks hefur kært konuna fyrir umsáturseinelti. Lögreglan hefur rannsakað þær ásakanir síðustu ár og stendur sú rannsókn enn yfir.Í morgun birtist andlátstilkynning á minningarsíðum Morgunblaðsins þar sem tilkynnt var um andlát Sölva Guðmundssonar. Sú tilkynning reyndist uppspuni frá rótum, líkt og hann greindi frá á samfélagsmiðlum sínum. „Kæru ættingjar og vinir þið sem hafið verið að senda skilaboð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprelllifandi.“Sölvi gagnrýndi í færslunni að lögregla hefði lítið aðhafst og sagði: „Þetta er ekkert grín að eiga við svona andskotans viðb
Kona handtekin í tengslum við birtingu falskrar dánartilkynningar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta