Ásakanir um undirferli og óheiðarleg vinnubrögð eru farnar að setja mark sitt á lokasprettinn í kosningabaráttunni í Ungverjalandi. Þingkosningar verða þar á sunnudaginn, og óháðar skoðanakannanir benda til þess að stjórnarandstöðunni muni mögulega takast að velta Fidez-flokki Viktors Orban forsætisráðherra úr sessi, eftir sextán ára valdatíð.„Andstæðingar okkar beita öllum brögðum til að komast til valda,“ sagði Orban í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum í gær. Hann sakaði andstæðingar sína um að vinna með leyniþjónustum erlendra ríkja og hóta stuðninsmönnum sínum ofbeldi - án þess að færa nokkrar sönnur á það. „Þetta er skipuleg tilraun til að nota óreiðu, þrýsting og illan vilja erlendis frá til að draga vilja ungversku þjóðarinnar í efa,“ sagði Orban.Peter Magyar, leiðtogi Tisza-