Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Samlagsfélag eiginmanns Ölmu fékk 28 milljóna verktakagreiðslur til viðbótar

Samlagsfélag í eigu Torfa Fjalars Jónassonar, hjartalæknis og eiginmanns Ölmu Möller, fyrrverandi landlæknis og núverandi heilbrigðisráðherra, og hennar fékk greiddar rúmlega 28 milljónir króna í verktakagreiðslur fyrir hjartaómskoðanir á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2021 til 2025. Þetta kemur fram í svörum frá aðstoðarmanni Ölmu Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn fréttastofu um verktakagreiðslur til félagsins vegna hjartaómskoðana. Alma var landlæknir á árunum 2018 til 2024 en þá settist hún á þing og varð heilbrigðisráðherra. Þessar greiðslur bætast við tæplega 30 milljóna króna verktakagreiðslur sem samlagsfélagið fékk fyrir svokölluð ferliverk á árunum 2023 til 2025. Fréttastofa sagði frá þessum greiðslum í mars.Torfi Fjalar var og er starfsmaður Sjúkrahússins á Akureyri og
Samlagsfélag eiginmanns Ölmu fékk 28 milljóna verktakagreiðslur til viðbótar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta