Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í bæjarstjórnarkosningum í vor. Hún hefur verið bæjarstjóri frá 2018 fyrir hönd bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey sem hefur verið í meirihlutasamstarfi með Eyjalistanum. „Ég hef ákveðið að verða við þeirri ósk Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum að vera bæjarstjóraefni flokksins í kosningunum í næsta mánuði,“ skrifar Íris á Facebook-síðu sína í dag. Hún segist ekki síst hafa tekið þessa ákvörðun vegna þess að hún hafi átt gott og traust samstarf við Eyþór Harðarson, oddvita flokksins, auk þess sem gott samstarf hafi verið í nefndum og ráðum allt kjörtímabilið.Fyrir Heimaey varð til fyrir kosningarnar 2018 þegar Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði. Ákveðið var fyrr í vor að bæjarmálafé