Dánartilkynning birtist í Morgunblaðinu í morgun um mann sem ekki er látinn. Maðurinn, Sölvi Guðmundsson, tjáir sig um málið á Facebook.„Kæru ættingjar og vinir þið sem hafið verið að senda skilboð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprelllifandi,“ skrifar Sölvi.Sölvi nafngreinir tvær konur sem hann telur hafa átt hlut að máli. Minnst þrír menn hafa kært aðra konuna fyrir umsáturseinelti. Sölvi segir sjálfur í ummælum við færslu sína að hann hafi kært hana.„Þetta er ekkert grín að eiga við svona andskotans viðbjóði meðan lögvaldið klórar sér í rassgatinu,“ skrifar Sölvi.Þetta er ekki í fyrsta skipti sem röng dánartilkynning hefur verið send inn til birtingar í Morgunblaðinu. Það gerðist í desember 2008. Þá var fangi á Litla-Hrauni sagður hafa andast eftir la