Landsmenn verða að vera meðvitaðir um þau tækifæri og þær áskoranir sem felast í gervigreind og móta sér skýra stefnu um ábyrga og gagnlega notkun hennar, segir Halla Tómasdóttir forseti. Hún segir, í aðsendri grein á Vísi, að allir sem hér búa beri sameiginlega ábyrgð á því að skapa samfélag þar sem tæknin þjónar manninum en ekki öfugt.„Við virðumst eiga í vaxandi erfiðleikum með að eiga yfirvegað samtal um flókin málefni. Umræðan, sem á sér að mestu stað á vefmiðlum og samfélagsmiðlum, verður iðulega hvöss og persónuleg, enda mótuð af hagsmunum sem umbuna þátttakendum fyrir upphrópanir fremur en ígrundun. Skautuð og hatursfull skoðanaskipti hafa áhrif á traust okkar hvert til annars og á grundvöll lýðræðisins,“ skrifar Halla og bætir við:„Gervigreindin hefur burði til að magna þessi neik