Útlit er fyrir stöku él framan af degi en það léttir til norðanlands með morgninum og sunnantil eftir hádegi. Það blæs dálítið framan af en dregur úr vindi þegar líður á daginn. Hiti verður yfirleitt rétt yfir frostmarki í dag. Það hvessir á morgun, sérstaklega á Suðausturlandi og fer að snjóa fyrir austan síðdegis á morgun eftir él norðan- og austantil um morguninn.Veðurspáin er svohljóðandi:Suðvestan 5-13 m/s og stöku él, en léttir til norðanlands og einnig sunnantil eftir hádegi. Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og léttskýjað seinnipartinn. Hiti 1 til 5 stig yfir daginn, en frystir víða í kvöld. Norðlægari í nótt með dálitlum éljum fyrir norðan, en þurrt sunnanheiða. Vaxandi norðaustanátt á morgun, 10-18 m/s undir kvöld, en heldur hvassara í vindstrengjum á Suðausturlandi. Dálítil él eða sl