Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íranar vilja ekki stríð við Bandaríkin eða Ísrael

Æðstiklerkur Írans, Mojtaba Khamenei, segir að Íran vilji ekki stríð við Bandaríkin eða Ísrael en muni verja rétt sinn sem þjóð. Þetta kom fram í skriflegri tilkynningu sem íranskur ríkisfjölmiðill birti í gær.Hann bætti við að Íranar ætli ekki að afsala sér lögmætum réttindum undir neinum kringumstæðum og það eigi við alla andstöðu. Talið er að þar sé hann að vísa í Líbanon þar sem Ísraelar hafa gert miklar árásir á Hezbollah-samtökin sem njóta stuðnings Írans.Khamenei hefur ekki enn sést opinberlega frá því að hann var valinn æðstiklerkur í kjölfar þess að faðir hans og fyrrum æðstiklerkur Ayatollah Ali Khamenei, var drepinn í árásum Bandaríkjanna og Ísraels 28. febrúar. Talið er að Mojtaba Khamenei hafi særst í sömu árás.
Íranar vilja ekki stríð við Bandaríkin eða Ísrael

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta