Aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, Sergei Ryabkov, fundaði með Miguel Diaz-Canel forseta Kúbu í gær. Fundur þeirra er haldinn tíu dögum eftir að rússneskt olíuflutningaskip flutti olíu til eyjunnar þvert á viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna.Forsetaskrifstofa Diaz-Canel sendi út tilkynningu eftir fund þeirra þar sem kærri kveðju var komið á framfæri til Vladimirs Pútíns Rússlandsforseta. Í tilkynningunni sagði einnig að aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands hefði sagt að Rússland sýndi fulla samstöðu með Kúbu og stæði þétt með landinu þrátt fyrir þá stöðu sem landið væri í.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað tollum á hvert það land sem selur olíu til Kúbu. Bandaríkin skilgreina Kúbu sem ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, hefur farið fram á