Rússar og Úkraínumenn hafa tilkynnt um hlé á árásum vegna páskahalds, en rétttrúnaðarkirkjan heldur upp á páska á sunnudaginn. Vladimir Pútín forseti Rússlands tilkynnti um vopnahléið í gær og sagði að það gildi frá kl. 4 síðdegis á laugardaginn þar til á miðnætti 12. apríl, sem er páskadagur bæði í rússnesku og úkraínsku réttrúnaðarkirkjunni.Volodomir Zelensky forseti Úkraínu tilkynnti í færslu á samfélagsmiðlinum X í gærkvöld að Úkraínumenn virði hlé á árásum um páskana. Hann sagði að fólk þyrfti hlé frá árásum. Zelensky lagði upphaflega til að hlé yrði gert á árásum og kom þessari tillögu á framfæri við Bandaríkin. ÁTÖKIN Í ÚKRAÍNU ERU NÁNAST Í KYRRSTÖÐU Rússar hafa náð litlu landsvæði undanfarið en fórnarkostnaðurinn hefur verið mikill. Úkraínski herinn hefur þó náð til baka landsvæ