Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrrum utanríkisráðherra lést af völdum áverka

Kamal Kharazi, fyrrum utanríkisráðherra Írans.EPA / BallesterosFyrrum utanríkisráðherra Írans, Kamal Kharazi, lést í gær af völdum áverka sem hann hlaut í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 1. apríl síðastliðinn.Ríkisfjölmiðill í Íran greindi frá andláti hans. Kharazi var 81 árs og var yfirmaður alþjóðasamskiptaráðs sem tilheyrir íranska utanríkisráðuneytinu.Þar áður var hann sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og utanríkisráðherra Írans frá árunum 1997–2005 í ríkisstjórn Mohammads Khatami. Eiginkona Kharazi lést í árásinni sem var gerð á heimili þeirra í Teheran.
Fyrrum utanríkisráðherra lést af völdum áverka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta