Bandaríkjaforseti hefur að undanförnu skaðað trúverðugleika Nato meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseti hefur náð að gera á margra ára tímabili. Þetta er mat Petr Pavel Tékklandsforseta og fyrrverandi hershöfðingja og formanns herforingjaráðs NATO á stöðunni sem upp er komin innan bandalagsins eftir árás Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran.Pavel vísar til fjölmargra opinberra ummæla Donalds Trump, þar sem hann lýsir efasemdum um ágæti og tilgang bandalagsins og bæði gagnrýnir og hæðir bandamenn sína vegna tregðu þeirra til að taka þátt í árásarstríðinu. Þessa tilteknu gagnrýni segir Pavel „ósanngjarna, svo vægt sé til orða tekið."Fjallað var um þetta í Speglinum á fimmtudag. Hlusta má á þá umfjöllun í spilaranum hér að neðan eða lesa hana áfram þar fyrir neðan.Bandaríkjaforseti gagnrýnir