Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Eldur í kartöfluskúr í Skammadal

RÚV / Hólmfríður Dagný FriðjónsdóttirSlökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna elds í kartöfluskúr í Skammadal, í Mosfellsdal. Einn dælubíll var sendur á vettvang.Kofinn var alelda þegar slökkvilið kom á vettvang samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Slökkvistarf gekk greiðlega og ekki var hætta á að eldur bærist út í nærliggjandi kofa. Kartöfluskúrinn brann til grunna en eldsupptök eru ókunn.
Eldur í kartöfluskúr í Skammadal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta