Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 13 ára fangelsi fyrir ítrekuð og gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Brotin voru framin frá vori ársins 2023 fram að hausti ársins 2025, þegar stúlkan var sex til níu ára gömul.Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að maðurinn hafi verið ákærður fyrir „stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun, tilraun til nauðgunar og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa án samþykkis margítrekað haft önnur kynferðismök en samræði við [stúlkuna], með því beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung og með því að nýta sér yfirburði sína og traust hennar og trúnað sem stjúpfaðir og notfært sér að stúlkan gat hvorki spornað við verknaðinum né skilið þýðingu hans vegna aldurs og eftir atvikum svefndrunga.“Þá segir að maðurinn hafi með háttsemi sinni endurte