Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, þvertekur fyrir tengsl við barnaníðinginn Jeffrey Epstein og samverkakonu hans Ghislaine Maxwell né hafa haft vitneskju um glæpi þeirra. Þá kvaðst hún sjálf ekki vera meðal fórnarlamba hans. Frá þessu greindi hún í óvæntu ávarpi til þjóðarinnar í dag.Þar vísaði hún sögusögnum um að Epstein hefði kynnt hana fyrir eiginmanninum Donald Trump Bandaríkjaforseta á bug og sagði þær ekkert annað en illgjarnar árásir á orðspor sitt. Slíkum lygum þyrfti að linna. Hún væri ekki vitni í málinu, hvað þá fórnarlamb.„Ég er ekki fórnarlamb Epsteins.“ SVARAÐI TÖLVUPÓSTI FRÁ MAXWELL Forsetafrúin segist einungis hafa hitt Epstein í eitt skipti og átt ein tölvupóstasamskipti við Maxwell. Hún sagði tölvupóst sinn til Maxwell á árinu 2002 ekkert nema kurteisishjal og